Farðu í vöruupplýsingar
1 af 9

Tesla aukahlutir

Nano Ceramic lakkvörn fyrir Tesla M3 og MY

Nano Ceramic lakkvörn fyrir Tesla M3 og MY

Venjulegt verð 195.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 195.000 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.

Nanó Ceramic vörn frá Íslandsvörn ásamt aukahlutum frá okkur á 15% afslætti með ísetningu. 

Nanó Ceramic vörnin hentar sérlega vel fyrir Teslur á Íslandi, Ceramic húðin ver lakkið fyrir Íslensku veðurfari og auðveldar þrif svo um munar! 

Hvernig virkar ferlið? 

1. Þú kaupir Ceramic vörn og færð um leið 15% afslátt af öllum vörum á vefsíðu okkar.  

2. Við finnum tíma sem hentar þér 

3. Þú færð lánsbíl þér að kostnaðarlausu. 

4. Íslandsvörn setur aukahluti á um leið og þeir Ceramic verja Tesluna.

ATH ** Þú getur valið eina vöru á 15% afslætti eftir að hafa valið Ceramic vörn en þú færð sendann afsláttakóða svo þú getir keypt fleiri en eina vöru strax í kjölfarið **

Upplýsingar um Íslandsvörn:

Átta ára reynsla

Nano Ceramic Protect lakkvörnin kom á markað árið 2015 á Íslandi og er því með            reynslumestu lakkvarnarefnum landins!

Frír lánsbíll

Við lánum þér bíl á meðan meðferð stendur þér að kostnaðarlausu.

Bónbrúsinn í ruslið

Engin þörf er á að bóna Keramik húðaðan bíl. Lakkvörnin veitir úrvals vörn gegn sólarljósi, ryðmyndun og ákomu skemmdum. Leikur einn verður að þrífa bílinn og sjaldan þörf á tjöruhreinsi.

Íslandsvörn er umboðsaðili fyrir Nano Ceramic Protect á Íslandi.

Allir starfsmenn hjá okkur sem meðhöndla efnið hafa sótt námskeið og eru viðurkenndir ásetningaraðilar af framleiðanda ásamt því að vera faglærðir bílamálarar.

Nano tæknin er einstök en í stuttu máli þá er mun betri viðloðun á Nano efnum en gengur og gerist.

Árið 2022 tók Íslandsvörn við Nano Ceramic Protect umboðinu af Auto Center ásamt starfsfólki sem hefur starfað alla tíð hjá Auto Center og er með 9 ára reynslu að vinna með efnið.

Í stuttu máli þá setjum við þrjú mismunandi varnarlög yfir lakk bílsins.

Fyrst setjum við tvær umferðir af Nano Ceramic 9H Gold og Red innri vörninni, sem hefur 5 ára endingu. Hún er með herslu stuðul 9H á meðan glæra bílsins er með stuðulinn 2H-3H. Hún er því amk þrisvar sinnum sterkari en glæra bílsins og dregur því úr grjótkasti og rispum. Þykktin á vörninni er 0,6-0,8 micron og einungis hægt að fjarlægja hana með sandpappír.

Næst setjum við tvær umferðir af Nano Soft sem er ytri vörnin (hefðbundin aðferð er ein umferð). Hún gefur bílnum gríðarlegan gljáa og hefur mikil vatnsfráhrindandi áhrif og verður leikur einn að þrífa bílinn og viðhalda honum hreinum. Hana þarf að endurnýja á árs fresti.
Hjá okkur starfa faglærðir bílamálarar sem sprauta bílinn með sprautukönnu og þannig náum við að þekja öll svæði og einnig verður húðin alveg jöfn. 
Einnig er í boði Nano meðferð að innan þar sem við notum þar til gerð efni frá Nano Ceramic á mælaborð, gólf og sætisáklæði bílsins. Eftir meðferðina mun ryk og drulla síður setjast á mælaborð og sæti og vökvi flýtur ofaná.
Við bjóðum upp á 5 ára ábyrgð á verkinu, gegn því að bíllinn komi einu sinni á ári í endurnýjun á ytri vörninni (Nano Soft) þar sem lakkvörnin er núllstillt.
Engin þörf er að bóna bíl með Nano Ceramic vörn. Hún gefur mun betri vörn gegn sólargeislum og salti heldur en nokkurntíman bónhúð.

FERLIÐ

Undirbúningur - Tjöruþvottur, leirun og járnflísahreinsun

Í hvert skipti sem við hefjum meðferð þarf að tryggja að engin óhreinindi sitji í lakkinu. Fyrst er bíllinn tjöruþveginn, járnflísahreinsaður og leiraður. Að því loknu er hann settur undir sterka lýsingu og lakkið er ástandsskoðað og lakkþykktarmælt. 

Undirvinna - Mössun

Þegar lakkþykktarmæling og ástandsskoðun lakks er lokið er hafist handa við mössun. Mössunarferlið er þrískipt. Fyrst er grófur púði notaður svo unnið sig niður í fínni púða. Þegar þessu er lokið er yfirborðs flötur lakksins orðinn alveg sléttur og rispufrír.

Ásetning

Lokaskrefið er svo ásetning efnisins. Við notum sprautukönnu við ásetningu sem tryggir jafnari húð og þekur betur erfiða staði eins og framgrill, ristar og inn á milli boddýhluta. Hjá okkur starfar menntaður bílamálari sem sér um alla sprautun hjá okkur.

 

Skoða allar upplýsingar